Síðsumarsýning kynbótahrossa á Vesturlandi
Síðsumarsýning kynbótahrossa á Vesturlandi verður að Mið-Fossum, Borgarfirði dagana 15.-19. ágúst næstkomandi að er fram kemur í tilkynningu frá Búnaðarsamtökum Vesturlands.
„Ef ekki mætir sá fjöldi sem reiknað er með verður dögunum fækkað. Tekið er við skráningum hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands dagana 8.-10. ágúst í síma 437-1215. Við skráningu þarf að koma fram númer, nafn og uppruni hrossanna, nafn og kennitala knapa og sími. Sýningargjald á hvert hross er kr. 15.000,- fyrir fulldæmd hross en kr. 10.500 fyrir hross sem aðeins er skráð í byggingardóm eða hæfileikadóm.
Sýningargjöld skal greiða á skrifstofu BV á Hvanneyri eða á reikning nr. 0354-26-100, kt.: 461288-1119. Ef greitt er í gegnum netbanka þarf að senda greiðslukvittun á netfangið [email protected]. Nauðsynlegt er að fram komi nafn og númer hrossa sem greitt er fyrir. Ef ekki er greitt í gegnum netbanka, er mikilvægt að faxa greiðslukvittun á númerið 437-2015. Endurgreiðsla sýningargjalda kemur aðeins til greina ef forföll séu tilkynnt fyrir kl 8:00 þann 15. ágúst.
Hafi greiðsla ekki borist fyrir lok dagsins 10. ágúst verður viðkomandi hross ekki skráð á sýninguna.
Við skráningu þurfa eftirfarandi atriði að vera í lagi:
Öll hross sem koma til kynbótadóms skulu vera grunnskráð í WorldFeng og einstaklingsmerkt.
Allir stóðhestar sem koma til dóms skulu vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra, s.s. þess er krafist að allir stóðhestar hafi sannað ætterni.
Úr stóðhestum 5 vetra og eldri þarf að hafa verið tekið blóðsýni.
Röntgenmyndir þurfa að hafa verið teknar af hæklum allra stóðhesta sem náð hafa fimm vetra aldri. Hestur hlýtur ekki dóm nema myndataka hafi farið fram og niðurstöður liggi fyrir í Worldfeng.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum