Siggi Sig og Kjarnorka komin í annað sætið
Hann var einbeittur hann Sigurður Sigurðarson þegar hann mætti í braut á Kjarnorku frá Kálfholti rétt áðan. Þau áttu glæsilega sýningu og fór kliður um áhorfendabrekkuna og var klappað ákaft þegar þau luku sýningu. Sigurður og Kjarnorka hlutu fyrir þessa sýningu 8,10 og eru komin á sannfærandi hátt í annað sætið nú þegar 42 af 60 keppendum hafa lokið keppni.
A landsliðshópur Íslands