Sigrún Helga Íslandsmeistari
Keppni í slaktaumatölti barna var skemmtileg og greinilegt að góðir og mjúkir töltarar henta vel í þetta keppnisform.
Íslandsmeistari í slaktaumatölti barna er Sigrún Helga Halldórsdóttir og Gefjun frá Bjargshóli og fagnaði hún titlinum vel, eins og myndin sýnir. Einkunn hennar og Gefjunar 7,04.
Í öðru sæti varð Guðmar Líndal og Björk frá Lækjamóti með 6,83 og Kristín Karlsdóttir varð í þriðja sætinu með 6,29.
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Sigrún Helga Halldórsdóttir / Gefjun frá Bjargshóli 7,04
2 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal / Björk frá Lækjamóti 6,83
3 Kristín Karlsdóttir / Einar-Sveinn frá Framnesi 6,29
4 Matthías Sigurðsson / Biskup frá Sigmundarstöðum 5,58
5 Lilja Rún Sigurjónsdóttir / Þráður frá Egilsá 3,54
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH