Sigrún Högna og Sirkus halda sigurförinni áfram
Fyrstu úrslit að hádegishléi loknu voru A-úrslit í fimmgangi unglinga þar sem Sigrún Högna Tómasdóttir hélt sigurför sinni áfram en hún varð Íslandsmeistari í þessari grein á Íslandsmóti barna og unglinga á Selfossi í júní. Védús Huld Sigurðardóttir varð önnur með 6,62 í einkunn og Benedikt Ólafsson í þriðja með 6,52 í einkunn.
Reykjavíkurmeistari árið 2020 er Matthías Sigurðsson á Djákna frá Stóru-Gröf Ytri
A-úrslit fimmgangur unglinga
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Sigrún Högna Tómasdóttir / Sirkus frá Torfunesi | 6,88 |
| 2 | Védís Huld Sigurðardóttir / Elva frá Miðsitju | 6,62 |
| 3 | Benedikt Ólafsson / Leira-Björk frá Naustum III | 6,52 |
| 4 | Matthías Sigurðsson / Djákni frá Stóru-Gröf ytri | 6,48 |
| 5 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir / Björk frá Barkarstöðum | 6,36 |
| 6 | Hrund Ásbjörnsdóttir / Sæmundur frá Vesturkoti | 5,86 |
| 7 | Jón Ársæll Bergmann / Vonar frá Eystra-Fróðholti | 5,76 |
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV