Sigrún íþróttastjóri Sörla næstu tvö árin
„Hestamannafélagið Sörli hefur gert samning við Sigrúnu Sigurðardóttur reiðkennara um að gegna störfum íþróttastjóra fyrir félagið út árið 2016. Sigrún sem hefur starfað farsællega hjá félaginu frá árinu 2012, mun setja saman námskrá fyrir hestamannafélagið og hafa yfirumsjón með öllu námskeiðshaldi og reiðkennslu á vegum félagsins.
Sigrún er einn reynslumesti reiðkennari landsins og hefur stundað kennslu í rúm 30 ár. Hún er með reiðkennararéttindi B og landsdómararéttindi sem gæðingadómari. Sigrún hefur einnig tekið þátt í ýmsu starfi reiðkennara og m.a. verið virk í kennslu knapamerkjanna, þar sem hún hefur kennt öll stigin fimm. Hún hefur einnig starfað við reiðþjálfun fatlaðra og stundað kennslu víða um heim.
Stjórn hestamannafélagsins Sörla fagnar þessum tímamótum og býður Sigrúnu velkomna til starfa.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH