Meistaradeild Ungmenna og Top Reiter 2023 Sigrún og Sirkus vinna fimmganginn annað árið í röð

  • 16. febrúar 2024
  • Fréttir
Keppni í fimmgangi í Meistaradeild ungmenna og Top Reiter er lokið.

Keppnin fór fram í kvöld í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. 30 knapar voru skráðir til leiks og voru það Sigrún Högna Tómasdóttir og Sirkus frá Torfunesi sem stóðu uppi sem sigurvegarar. Sigrún og Sirkus unnu þessa grein einnig í fyrra.

Þetta voru spennandi úrslit og hart barist allt til loka. Fyrir skeiðið var mjög mjótt á munum á efstu knöpum og greinilegt að úrslitin myndu ráðast á skeiðinu. Þar voru þau Sigrún og Sirkus hæst með 7,50 í einkunn fyrir það atriði.

Í öðru sæti endaði Matthías Sigurðsson á Veröld frá Lækjarbakka með 6,74 í einkunn. Bæði Matthías og Sigrún eru í liði Hjarðartúns en það var stigahæsta liðið í kvöld og halda forustu sinni í liðakeppninni. Á eftir þeim kemur lið Hrímnis.

Í þriðja sæti varð Sigurður Baldur Ríkharðsson á Myrkva frá Traðarlandi með 6,55 í einkunn en hann keppir fyrir lið Hrímnis.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr fimmgangnum

A úrslit
Sæti Knapi Hross Lið Einkunn
1 Sigrún Högna Tómasdóttir Sirkus frá Torfunesi Hjarðartún 6,93
Tölt 7,00 7,00 7,00 6,50 6,50
Brokk 6,50 6,50 6,50 6,00 6,50
Fet 7,00 7,00 6,50 6,50 7,00
Stökk 6,50 6,50 6,50 6,00 6,50
Skeið 7,50 8,00 7,50 7,50 7,50

2 Matthías Sigurðsson Veröld frá Lækjarbakka Hjarðartún 6,74
Tölt 7,00 6,50 6,50 6,00 6,50
Brokk 6,50 6,00 6,50 6,50 6,50
Fet 6,50 7,50 7,00 7,00 6,50
Stökk 6,50 6,50 6,50 7,00 6,00
Skeið 7,00 7,50 7,00 6,50 7,50

3 Sigurður Baldur Ríkharðsson Myrkvi frá Traðarlandi Hrímnir 6,55
Tölt 7,50 7,50 7,00 7,50 7,00
Brokk 7,50 6,50 6,00 6,00 6,00
Fet 5,50 5,50 6,00 5,00 6,50
Stökk 6,00 7,00 6,50 6,50 6,00
Skeið 6,50 6,50 6,50 6,50 7,00

4 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Jarlhetta frá Torfastöðum Hrímnir 6,50
Tölt 7,00 7,00 6,50 7,00 6,50
Brokk 6,50 6,00 6,00 6,50 6,00
Fet 6,50 6,50 6,50 6,00 6,50
Stökk 6,00 5,00 5,00 5,00 5,50
Skeið 6,50 7,50 7,00 7,00 7,00

5 Védís Huld Sigurðardóttir Heba frá Íbishóli Miðás 6,45
Tölt 7,50 7,00 7,50 7,50 7,50
Brokk 7,50 7,00 7,00 7,00 7,00
Fet 6,00 6,50 6,50 6,00 6,50
Stökk 4,00 4,50 5,00 5,50 5,00
Skeið 7,00 6,00 5,50 5,50 6,50

B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Emilie Victoria Bönström Hlekkur frá Saurbæ Hamarsey/E.Alfreðsson 6,98
Tölt 6,50 7,00 7,00 6,00 7,00
Brokk 6,50 6,50 6,00 6,00 6,50
Fet 7,50 8,00 8,00 7,50 7,50
Stökk 7,00 7,00 7,00 6,50 6,50
Skeið 6,50 7,00 7,00 7,50 7,50

7 Benedikt Ólafsson Tobías frá Svarfholti Hrímnir 6,83
Tölt 6,50 7,00 7,00 6,00 7,00
Brokk 6,50 6,50 6,00 6,00 6,50
Fet 7,50 8,00 8,00 7,50 7,50
Stökk 7,00 7,00 7,00 6,50 6,50
Skeið 6,50 7,00 7,00 7,50 7,50

8 Jón Ársæll Bergmann Grandi frá Lynghaga Hjarðartún 6,26
Tölt 6,50 7,00 7,00 6,00 7,00
Brokk 6,50 6,50 6,00 6,00 6,50
Fet 7,50 8,00 8,00 7,50 7,50
Stökk 7,00 7,00 7,00 6,50 6,50
Skeið 6,50 7,00 7,00 7,50 7,50

9 Embla Þórey Elvarsdóttir Tinni frá Laxdalshofi Hamarsey/E.Alfreðsson 6,24
Tölt 6,50 6,00 6,00 5,00 6,00
Brokk 6,00 5,50 6,00 5,50 5,50
Fet 7,00 7,00 7,00 7,00 6,50
Stökk 6,50 5,50 6,00 5,00 5,50
Skeið 6,50 6,50 7,00 5,50 7,00

10 Lilja Dögg Ágústsdóttir Teitur frá Efri-Þverá Storm Rider 5,38
Tölt 6,00 6,00 6,00 4,50 6,50
Brokk 4,00 4,00 4,00 4,00 6,00
Fet 4,50 5,50 5,00 5,50 4,50
Stökk 5,00 3,00 4,00 4,00 4,00
Skeið 6,50 6,50 6,50 6,00 5,50

Forkeppni 
Sæti Knapi Hross Einkunn
1-2 Sigurður Baldur Ríkharðsson Myrkvi frá Traðarlandi Hrímnir 6,83
1-2 Védís Huld Sigurðardóttir Heba frá Íbishóli Miðás 6,83
3 Sigrún Högna Tómasdóttir Sirkus frá Torfunesi Hjarðartún 6,63
4 Matthías Sigurðsson Veröld frá Lækjarbakka Hjarðartún 6,60
5 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Jarlhetta frá Torfastöðum Hrímnir 6,50
6 Benedikt Ólafsson Tobías frá Svarfholti Hrímnir 6,37
7 Jón Ársæll Bergmann Grandi frá Lynghaga Hjarðartún 6,27
8 Emilie Victoria Bönström Hlekkur frá Saurbæ Hamarsey/E.Alfreðsson 6,17
9 Embla Þórey Elvarsdóttir Tinni frá Laxdalshofi Hamarsey/E.Alfreðsson 6,10
10 Lilja Dögg Ágústsdóttir Teitur frá Efri-Þverá Storm Rider 5,80
11 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Þytur frá Stykkishólmi Ellert Skúlason/Hofsstaðir Gbr. 5,53
12-13 Glódís Líf Gunnarsdóttir Mári frá Hvoli II Ellert Skúlason/Hofsstaðir Gbr. 5,37
12-13 Sara Dís Snorradóttir Greifi frá Grímarsstöðum Storm Rider 5,37
14 Eva Kærnested Magni frá Ríp Miðás 5,23
15 Selma Leifsdóttir Hrauna frá Eylandi Miðás 5,13
16-17 Unnur Erla Ívarsdóttir Stillir frá Litlu-Brekku Morastaðir 5,10
16-17 Herdís Björg Jóhannsdóttir Snædís frá Forsæti II Storm Rider 5,10
18-19 Eydís Ósk Sævarsdóttir Blakkur frá Traðarholti Fákafar/Hestvit 4,93
18-19 Guðný Dís Jónsdóttir Már frá Votumýri 2 Ellert Skúlason/Hofsstaðir Gbr. 4,93
20 Aníta Eik Kjartansdóttir Dynur frá Vatnsleysu Fákafar/Hestvit 4,80
21 Ingunn Rán Sigurðardóttir Mist frá Einhamri 2 Morastaðir 4,77
22 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kári frá Morastöðum Morastaðir 4,63
23 Hekla Rán Hannesdóttir Vísir frá Ytra-Hóli Hamarsey/E.Alfreðsson 4,60
24 Signý Sól Snorradóttir Mæra frá Reynistað Hrímnir 4,57
25 Júlía Björg Gabaj Knudsen Nagli frá Grindavík Morastaðir 4,23
26 Júlía Guðbjörg Gunnarsdóttir Loki frá Laugavöllum Belcando 3,93
27 Þorbjörg H. Sveinbjörnsdóttir Bragi frá Efri-Þverá Storm Rider 3,57
28 Viktoría Brekkan Djákni frá Gröf Belcando 3,43
29 Þórdís Agla Jóhannsdóttir Möndull frá Halakoti Hamarsey/E.Alfreðsson 3,40
30 Hjördís Helma Jörgensdóttir Krossgáta frá Skipaskaga Fákafar/Hestvit 3,23

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link