Sigurbjörn í essinu sínu á Meistaramóti
Stakkur frá Halldórsstöðum, knapi Sigurbjörn Bárðarson.
Sigurbjörn Bárðarson var í essinu sínu á Meistaramóti Andvara um helgina, sigraði í sjötta sinn í A flokki gæðinga á Stakki frá Halldórsstöðum, nú með 9,0 í aðaleinkunn, í annað sinn í tölti á Jarli frá Búðardal með 8,22, og enn einu sinni (guð veit hve oft) í 150 m skeiði á Óðni frá Búðardal á 14,09 sekúndum.
Á Hestafréttum segir að hlaup Óðins sé nýtt Íslandsmet. Á vef LH eru skráð tvö Íslandsmet í 150 m skeiði á rafræna klukku. Óðinn á þau bæði, 14,15 sekúndur og 13,98 sekúndur. Bæði sett á Meistaramóti Andvara samkvæmt vef LH, hið seinna í fyrra og ætti því að vera í gildi sem Íslandsmet. Hestablaðið hefur beðið um útskýringar á þessu hjá skrifstofu LH og ætti svar að berast fljótlega.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH