Sigurbjörn knapi Fáks
Titilinn Knapi Fáks 2010 hlýtur sá sem á frábæran keppnisárangur á árinu, ásamt því að vera til félaginu til sóma á keppnisvellinum og utan hans…
Það er ekki að ósekju að Sigurbjörn Bárðarson á lang stærsta verðlaunagripasafn landsins. Árangur hans á keppnisvellinum í ár var mjög góður og varð hann m.a. tvöfaldur Reykjavíkurmeistari, þrefaldur Íslandsmeistari, ásamt því að vera sigurvegari Meistaradeildar Vís og hampa sigri og verðlaunagripum á fleiri mótum.
Til hamingju Sigurbjörn með góðan árangur á árinu.
Aðrir knapar sem voru heiðraðir á Uppskeruhátíð Fáks eru Afreksknapar Fáks 2010 en það eru þeir knapar sem náðu því að landa bæði Reykjavíkurmeistaratitli og Íslandsmeistaratitli á árinu ásamt fleiri sigrum.
Afreksknapar Fáks 2010
Hinrik Bragason
Ragnar Tómasson
Sigurbjörn Bárðarson
Teitur Árnason
Viðar Ingólfsson
Einnig voru þeir Fáksknapar heiðraðir sem unnu sinn flokk á Reykjavíkurmótinu svo það var mikið um dýrðir á Uppskeruhátíð Fáks.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári