Sigurður og Freyðir sigruðu gæðingaskeiðið
Það var einnig keppt í gæðingaskeiði á Skeiðmóti Meistaradeildar VÍS í vorblíðu í Hafnarfirðinum í gærkvöldi. Gæðingaskeiðið er mjög skemmtileg grein, tæknileg og krefst þess að hafa fljótan og einkar þjálan hest, til að skora hátt.
Nokkrir mjög frambærilegir gæðingaskeiðshestar fóru brautina í gær og bestur þeirra varð Freyðir frá Hafsteinsstöðum hjá Sigurði Sigurðarsyni. Hlutu þeir einkunnina 7,88. Skammt undan í 2.sætinu varð Sigurður Vignir Matthíasson á Birtingi frá Selá með 7,67 og þriðji varð Guðmundur Björgvinsson á Gjálp frá Ytra-Dalsgerði með 7,63.
Hafnfirðingar tóku vel á móti knöpum og gestum í gærkvöldi, veitingasala var í reiðhöllinni og þó nokkuð var af áhorfendum í brekkunni og í bílum að fylgjast með meisturunum.
GæðINGASKEIð
Sæti Knapi Hross Lið Einkunn
1 Sigurður Sigurðarson Freyðir frá Hafsteinsstöðum Lýsi 7,88
2 Sigurður Vignir Matthíasson Birtingur frá Selá Málning 7,67
3 Guðmundur Björgvinsson Gjálp frá Ytra-Dalsgerði Top Reiter 7,63
4 Sigurbjörn Bárðarson Flosi frá Keldudal Lífland 7,17
5 Sigurður Óli Kristinsson Þruma frá Norður-Hvoli Frumherji 7,08
6 Ragnar Tómasson Gríður frá Kirkjubæ Lífland 7,04
7 Elvar Þormarsson Ástareldur frá Stekkjarholti Top Reiter 6,96
8 Teitur Árnason Gammur frá Skíðbakka Árbakki/Hestvit 6,79
9 Jakob Svavar Sigurðsson Funi frá Hofi Frumherji 6,54
10 Viðar Ingólfsson Dama frá Flugumýri Frumherji 6,38
11 Eyjólfur Þorsteinsson Ögri frá Baldurshaga Málning 6,29
12 Hinrik Bragason Tumi frá Borgarhóli Árbakki/Hestvit 6,29
13 Þórdís Gunnarsdóttir Trostan frá Auðsholtshjáleigu Auðsholtshjáleiga 5,63
14 Artemisia Bertus Hugsun frá Vatnsenda Auðsholtshjáleiga 4,75
15 Hulda Gústafsdóttir Saga frá Lynghaga Árbakki/Hestvit 4,71
16 Valdimar Bergstað Prins frá Efri-Rauðalæk Málning 4,13
17 Ævar Örn Guðjónsson Umsögn frá Fossi Lífland 3,88
18 Bylgja Gauksdóttir Leiftur frá Búðardal Auðsholtshjáleiga 0,5
19 Halldór Guðjónsson Akkur frá Varmalæk Lýsi 0
20 Lena Zielinski Andrá frá Dalbæ Lýsi 0
21 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Iðunn frá Hvoli Top Reiter 0
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH