Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Sigurður og Leikur unnu fjórganginn

  • 27. janúar 2022
  • Fréttir
Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum

Fyrsta mót ársins í hestaíþróttum fór fram í kvöld á Ingólfshvoli í Ölfusi í kvöld en þar var keppt í fjórgangi. Mótið fór fram án áhorfenda en sýnt var beint á RÚV2 og á Alendis.

Teitur Árnason á Takti frá Vakurstöðum átti frábæra sýningu í forkeppni og tryggðu þeir sér nokkuð öruggulega sæti í úrslitum með einkunnina 7,37. Mjótt var á munum á næstu knöpum en jafnir inn í úrslit í öðru sæti voru þeir Sigurður Sigurðarson á Leik frá Vesturkoti og hinn austurríski Pierre Sandsten-Hoyos á Aðgát frá Víðivöllum fremri með 7,13 í einkunn. Fjórði var Viðar Ingólfsson á Galdri frá Geitaskarði með 7,07 í einkunn og jafnar í fimmta voru þær Sara Sigurbjörnsdóttir á Flugu frá Oddhóli og Hanna Rún Ingibergsdóttir á Grími frá Skógarási með 7,03 í einkunn.

Úrslitin voru hörkuspennandi og hart barist um efsta sætið. Eftir hæga töltið voru þeir Teitur og Taktur efstir þeir áttu þó ekki nægilega góða sýningu á brokki og náðu þau Pierre og Aðgát efst sætinu eftir frábæra sýningu á brokki. Næst var riðið fet og voru þær Sara og Fluga bestar á því atriði og nældu sér í forustuna. Sigurður og Leikur áttu nokkuð jafna sýningu og fylgdu fast á hæla þeirra. Þeir áttu frábæra sýningu á stökki og fór það svo að eftir yfirferða töltið stóðu þeir félagar efstir með gullið í höndunum.

Liðakeppni kvöldsins sigraði lið Top Reiter en liðið var með tvo knapa í úrslitum þau Teit og Hönnu Rún en Árni Björn Pálsson keppti einnig fyrir liðið í fjórgangnum.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr úrslitum

Niðurstöður – A úrslit – Fjórgangur

  1. Sigurður Sigurðarson – Leikur frá Vesturkoti – Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 7,57
  2. Sara Sigurbjörnsdóttir – Fluga frá Oddhóli – Auðsholtshjáleiga 7,50
  3. Teitur Árnason – Taktur frá Vakurstöðum – Top Reiter  7,43
  4. Pierre Sandsten-Hoyos – Aðgát frá Víðivöllum fremri – Hestvit/Árbakki 7,20
  5. Hanna Rún Ingibergsdóttir – Grímur frá Skógarási – Top Reiter  6,97
  6. Viðar Ingólfsson – Galdur frá Geitaskarði – Hrímnir/Hest.is 6,87

Forkeppni – Niðurstöður – Fjórgangur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Teitur Árnason Top Reiter Taktur frá Vakurstöðum 7,37
2-3 Pierre Sandsten-Hoyos Hestvit / Árbakki Aðgát frá Víðivöllum
fremri 7,13
2-3 Sigurður Sigurðarson Þjóðólfshagi / Sumarliðabær Leikur frá
Vesturkoti 7,13
4 Viðar Ingólfsson Hrímnir / Hest.is Galdur frá Geitaskarði 7,07
5-6 Sara Sigurbjörnsdóttir Auðholtshjáleiga HORSEXPORT Fluga frá
Oddhóli 7,03
5-6 Hanna Rún Ingibergsdóttir Top Reiter Grímur frá Skógarási 7,03
7 Mette Mannseth Þjóðólfshagi / Sumarliðabær Skálmöld frá Þúfum 6,97
8-9 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Ganghestar / Margrétarhof Flóvent frá
Breiðstöðum 6,93
8-9 Glódís Rún Sigurðardóttir Ganghestar / Margrétarhof Hrafnfaxi frá
Skeggsstöðum 6,93
10 Páll Bragi Hólmarsson Skeiðvellir / Storm rider Vísir frá
Kagaðarhóli 6,90
11 Ragnhildur Haraldsdóttir Ganghestar / Margrétarhof Úlfur frá
Mosfellsbæ 6,87
12 Gústaf Ásgeir Hinriksson Hestvit / Árbakki Ási frá Hásæti 6,83
13-14 Sigursteinn Sumarliðason Skeiðvellir / Storm rider Fjöður frá
Hrísakoti 6,80
13-14 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðholtshjáleiga HORSEXPORT Fengur frá
Auðsholtshjáleigu 6,80
15-16 Arnar Bjarki Sigurðarson Hrímnir / Hest.is Örn frá
Gljúfurárholti 6,77
15-16 Árni Björn Pálsson Top Reiter Frár frá Sandhól 6,77
17 Jakob Svavar Sigurðsson Hjarðartún Hraunar frá Vorsabæ II 6,73
18 Elvar Þormarsson Hjarðartún Kostur frá Þúfu í Landeyjum 6,67
19 Helga Una Björnsdóttir Hjarðartún Fluga frá Hrafnagili 6,43
20 Janus Halldór Eiríksson Skeiðvellir / Storm rider Sigur frá
Laugarbökkum 6,40
21 Ólafur Ásgeirsson Þjóðólfshagi / Sumarliðabær Glóinn frá
Halakoti 6,33
22 Ásmundur Ernir Snorrason Auðholtshjáleiga HORSEXPORT Hlökk frá
Strandarhöfði 6,17
23 Hinrik Bragason Hestvit / Árbakki Útherji frá Blesastöðum 1A 5,97
24 Flosi Ólafsson Hrímnir / Hest.is Tími frá Breiðabólsstað 5,90

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link