Norðurlandamót Sigurður og Tígull í B úrslitum í tölti

  • 9. ágúst 2024
  • Fréttir
Niðurstöður úr forkeppni í tölti í meistaraflokki á Norðurlandamótinu

Það fer að styttast í annan endann á þessum öðrum degi Norðurlandamótsins en rétt í þessu var forkeppni í tölti T1 að ljúka eru þá eftir tvenn B úrslit, annars vegar í unglingaflokki og hins vegar fimmgangi í ungmennaflokki.

Dennis Hedebo Johansen og Muni fra Bendstrup eru efstir í tölti með 8,27 í einkunn. Glæsileg sýning hjá þeim en annar eftir forkeppni er Kristján Magnússon á Óskari från Lindeberg með 8,13 og í þriðja Frederikke Stougård á Austra frá Úlfsstöðum með 7,77.

Fyrir hönd Íslands kepptu þeir Sigurður Siguðarson á Tígli fra Kleiva og Viðar Ingólfsson á Tý från Svala Gård. Viðar og Týr náðu ekki inn í úrslit en Sigurður og Tígull enduðu í fimmta sæti með 7,70 í einkunn, jafnir Andreas Kjelgaard á Stjörnustæl fra Hybjerg en lægri á aukastöfum og mæta því til B-úrslita.

Niðurstöður – Tölt T1 – Fullorðinsflokkur – Niðurstöður

 

Fréttin hefur verið uppfærð.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link