Sigursteinn og Skuggi í góðum málum
Sigursteinn og Skuggi frá Hofi I á slökum taum
Sigursteinn Sumarliðason og Skuggi frá Hofi I voru rétt í þessu að lauma sér í efsta sætið í slaktaumatölti með einkunnini 7.30. Þeir félagar eru heldur betur að gera góða hluti hér í Berlín.
Þess má geta að Sigursteinn á afmæli í dag og það er því ekki slæmt að byrja afmælisdaginn á svona góðum árangri. Til hamingju Sigursteinn!
01: 015 Sigursteinn Sumarliðason [IS] – Skuggi frá Hofi I [IS2005177785] 7,30
PREL 7,0 – 7,1 – 7,3 – 7,5 – 7,5
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH