Landsmót 2024 Sigurvegarar B flokks frá upphafi

  • 30. júní 2022
  • Fréttir
Þrír dagar til Landsmóts

Á Landsmóti 1970 var í fyrsta skipti keppi í b flokki. Við dóma í B-flokknum var einkunnin 5,0 gefin fyrir skeið og voru klárhestarnir því lægri en alhliðahestarnir hvað þessu nam að öðrum einkunnum jöfnum þ.e.a.s.

Gráni frá Auðsstöðum var fyrstur hesta til að vinna b flokkinn en knapi á honum var Jóhann Friðriksson.

Frami frá Ketilsstöðum og Elin Holst unnu b flokkinn á síðasta Landsmóti með einkunnina 9,14. Rúna Einarsdóttir er fyrsta konan til að vinna b flokkinn á Landsmóti en hún og Dimma frá Gunnarsholti unnu b flokkinn á LM 1990 með 8,92 í einkunn.

Loki frá Selfossi og Sigurður Sigurðarson hafa hlotið hæstu einkunn sem gefin hefur verið í úrslitum í b flokki á Landsmóti en þeir unnu með 9,39 í einkunn á Landsmóti á Hellu. Sigurður hefur líka unnið B flokkinn á Landsmóti oftast allra eða alls þrisvar sinnum, á Loka, á Kjarnorku frá Kálfholti á LM2011 og á Kringlu frá Kringlumýri 1998.

Tveir hestar upprunir frá Kálfholti hafa unnið b flokkinn. Kjarnorka árið 2011 og Röðull árið 2008, knapi Ísleifur Jónasson.

Þeir hestar sem hafa unnið b flokkinn á Landsmóti á Hellu eru Loki frá Selfossi (2014), Röðull frá Kálfholti (2008), Rökkvi frá Hárlaugsstöðum (2004), Orri frá Þúfu í Landeyjum (1994) og Kristall frá Kolkuósi (1986).

Sigurvegarar B flokks á Landsmóti frá upphafi

Ár Staðsetning Hestur Knapi Einkunn
2018 Reykjavík Frami frá Ketilsstöðum Elin Holst 9,14
2016 Hólar í Hjaltadal Nökkvi frá Syðra-Skörðugili Jakob Svavar Sigurðsson 9,21
2014 Hella Loki frá Selfossi Sigurður Sigurðarson 9,39
2012 Reykjavík Glóðafeykir frá Halakoti Einar Öder Magnússon 9,00
2011 Vindheimamelar Kjarnorka frá Kálfholti Sigurður Sigurðarson 9,19
2008 Hella Röðull frá Kálfholti Ísleifur Jónasson 9,15
2006 Vindheimamelar Hlýr frá Vatnsleysu Snorri Dal 8,95
2004 Hella Rökkvi frá Hárlaugsstöðum Þorvaldur Árni Þorvaldsson
2002 Vindheimamelar Kjarkur frá Egilsstöðum Sigurður V. Matthíasson 9,03
2000 Reykjavík Markús frá Langholtsparti Sigurbjörn Bárðason 9,27
1998 Melgerðismelar Kringla frá Kringlumýri Sigurður Sigurðarson 8,96
1994 Hella Orri frá Þúfu í Landeyjum Gunnar Arnarson 8,91
1990 Vindheimamelar Dimma frá Gunnarsholti Rúna Einarsdóttir 8,92
1986 Hella Kristall frá Kolkuósi Gylfi Gunnarsson 8,69
1982 Vindheimamelar Hrímnir frá Hrafnagili Björn Sveinsson 8,86
1978 Skógarhólar Hlynur frá Akureyri Eyjólfur Ísólfsson 9,16
1974 Vindheimamelar Gammur frá Hofsstöðum Magnús Jóhannsson 9,12
1970 Skógarhólar Gráni frá Auðsstöðum Jóhann Friðriksson 8,20

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link