Sigurvegarar í fjórgangi
Fyrsta keppniskvöldið í Equsana deildinni fór fram nú í kvöld. Alls tóku fjörutíu og átta knapar þátt úr 16 mismunandi liðum.
Kvöldinu verða gerð góð skil í nýjum þætti á Stöð 2 Sport sem unnin er í samvinnu Eiðfaxa!
Saga Steinþórsdóttir stóð uppi sem sigurvegari á hesti sínum Móa frá Álfhólum en þau sigruðu einnig í keppni í fjórgangi árin 2017 og 2018.
Í öðru sæti varð Vilborg Smáradóttir á Sigri frá Stóra-Vatnsskarði og í því þriðja Gunnhildur Sveinbjarnardóttir og Elva frá Auðsholtshjáleigu.
A-úrslit
- Saga Steinþórsdóttir og Mói frá Álfhólum 7,17
- Vilborg Smáradóttir og Sigur frá Stóra-Vatnsskarði 7,13
- Gunnhildur Sveinbjarnardóttir og Elva frá Auðsholtshjáleigu 7,10
- Halldóra Baldvinsdóttir og Taktur frá Vakurstöðum 6,83
- Sunna Sigríður Guðmundsdóttir og Nói frá Vatnsleysu 6,77
- Helena Rekey Leifsdóttir og Faxi frá Hólkoti 6,63
- Kolbrún Grétarsdóttir og Jaðrakan frá Hellnafelli 5,93
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH