Sjálfboðaliðakynning
„Hefur þú tíma aflögu 1 sinni í viku í klukkutíma? Hefurðu áhuga á mannlegum samskiptum? Viltu vera í frábærum félagsskap?Ertu jákvæður og vilt gefa af þér?
Þá erum við að leita að þér!!
Hestamannafélagið Hörður – Fræðslunefnd fatlaðra býður upp á sjálfboðaliðakynningu á reiðnámskeiðum fyrir börn og ungmenni með fötlun þann 6. mars næstkomandi í félagsheimili Harðar Mosfellsbæ frá kl. 20 – 22.
Markmiðið er að kynna fyrir þeim sem hafa áhuga á starfinu hvað felst í því að vera sjálfboðaliði og aðstoða okkur með nemendur okkar á námskeiðinum okkar.
Sendið okkur póst á netfangið [email protected] til að skrá ykkur á kynninguna eða hringið í síma 8997299.
Léttar veitingar í boði.
ALLIR VELKOMNIR!,“ segir í tilkynningu frá Hestamannafélaginu Herði
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH