Sjarma gefin ólögleg verkjalyf
Sannað er að Sjarma frá Skriðuklaustri voru gefin ólögleg verkjalyf fyrir keppni á Mið-Evrópska meistaramótinu í Þýskalandi síðastliðið sumar. Niðurstaða úr svokölluðu B prófi var opnuð í dag að viðstöddum málsaðilum, en lögfræðingur austurísku hestakonunnar Petru Reiter-Tropper, sem var knapi á hestinum, hafði fengið málinu vísað frá á fyrsta stigi vegna formgalla á rannsókn A sýnis.
Það var verkjalyfið mefenamin-acid sem fannst í sýni sem tekið var úr Sjarma á Mið-Evrópska meistaramótinu. Petra Reiter-Tropper keppti meðal annars fyrir land sitt á HM2011. Þýska Íslandshestasambandið, IPZV, sem tók málið til sín eftir að FEIF missti lögsögu yfir því eftir frávísunina, mun nú taka kæruna upp að nýju. Petra Reiter-Tropper á yfir höfði sér allt að tveggja ára keppnisbann.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH