Sjö þúsund á LM2011
Haraldur Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Landsmóts ehf.
Sex þúsund og tvö hundruð manns greiddu aðgang að LM2011 á Vindheimamelum. Talið er að hátt í sjö þúsund manns hafi verið á svæðinu í það heila. Er þá talið með starfsfólk mótsins, veitingaaðila og fyrirtækja sem voru með sölubása á svæðinu.
Haraldur Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Landsmóts ehf., segir að framkvæmd mótsins hafi gengið afar vel. Engir stórvægilegir hnökrar eða slys hafi komið upp á, hvorki í keppninni né skemmtanahaldinu, ef undan er skilið eitt atvik, sem greint var frá í fréttum mótshelgina.
„Þetta gekk ótrúlega vel,“ segir Haraldur Örn. „Ég var dálítið kvíðinn fyrir mótið, en það var ástæðulaust. Því er að þakka frábæru starfsfólki, þetta gekk eins og vel smurð vél.
Þess ber þó að geta að álagið á starfsfólkið er að mínu mati allt of mikið. Mótið núna stóð í átta daga og vinnudagurinn oftast frá sjö á morgnana til ellefu á kvöldin. Ég held við verðum núna að staldra við og endurskoða lengd og umfang Landsmótanna. Þetta er hreinlega orðið of mikið fyrir flesta sem að þessu koma.“
Haraldur segir að núna sé verið að klára uppgjörið fyrir LM2011 og vonast hann til að geta skilað því á næstu dögum. „Mér sýnist að við náum að lenda þessu réttu megin við núllið og það verði jafnvel dálítill afgangur. Það var nokkur óvissa um hve margir myndu sækja mótið vegna þeirrar óvenjulegu stöðu sem uppi er vegna hestapestarinnar og frestun mótsins í fyrra. Við miðuðum framkvæmd og tilkostnað við sex þúsund greidda miða að lágmarki og dæmið virðist ganga upp, alla vega eins og það lítur út núna,“ segir Haraldur Örn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH