Sjúkdómsgreina fyrst, raspa svo
Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir, segir að tilgangurinn með birtingu greinar um tannraspanir í hrossum á vef Matvælastofnunar, sem einnig hefur verið birt á vefmiðlum hestamanna, sé ekki sá að hvetja fólk til að láta alls ekki skoða og eða raspa tennur í hrossum sínum ef þess þarf með.
Jens Einarsson:
„Mér finnst fyrirsögnin á frétt um tannraspanir á Eiðfaxa.is gefa tilefni til misskilnings. Það sem ég hef fyrst og fremst áhyggjur af er óhófleg og óþörf tannröspun. Að baki öllum inngripum í líkama dýra þurfa að liggja læknisfræðilegar ástæður. Ég er að vekja athygli á að sjúkdómsgreining sé forsenda fyrir meðhöndlun, hvort heldur er í munnholi eða öðrum líkamspörtum. Að slípa heilbrigðar framtennur er óafsakanlegt og þarf að stöðva í fæðingu.
Meðhöndlun einstakra tanna getur að sjálfsögðu verið nauðsynleg en ber að takmarka við þá sjúkdómsgreiningu sem fyrir liggur og skal útfæra þannig að sem minnst gangi á tönnina. Það þarf að gera greinarmun á tannröspun án skoðunar og sjúkdómsgreiningar annars vegar, og tannröspunar sem lið í meðhöndlun tanna í kjölfar skoðunar og sjúdómsgreiningar hins vegar. Hestar sem og önnur dýr eiga rétt á að þeir séu skoðaðir, sjúkdómsgreindir og meðhöndlaðir í samræmi við greiningu,“ segir Sigurborg Daðadóttir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH