Skagaströnd Hrossaræktarbú ársins 2020 í A-Húnavatnssýslu

  • 19. apríl 2021
  • Fréttir

mynd: Facebook

Hrossaræktarbúið Skagaströnd er hrossaræktarbú ársins 2020 í A-Húnavatnssýslu.

Eins og segir á Facebook síðu Skagastrandar að þá hófst ræktunin þegar Sveinn Ingi Grímsson og Líney Jósefsdóttir hófu að rækta undan gæðingamóðurinni Sunnu frá Akranesi. Nú hefur sonur þeirra, Þorlákur Sveinsson ásamt Guðrúnu Rut Hreiðarsdóttur, tekið við ræktuninni.

Alls voru átta hross sýnd í fullnaðardómi frá búinu á síðasta ári auk þess að hryssan Þjóð frá Skagaströnd hlaut heiðursverðlaun og varð í 2.-3. sæti.

Hér fyrir neðan er listi yfir öll sýnd hross frá Skagaströnd árið 2020 raðað eftir aðaleinkunn.

Nafn Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Hæfileikar án skeiðs Aðaleinkunn án skeiðs
Skuggi 8.6 8.67 8.65 8.79 8.72
Klakinn 8.72 8.53 8.6 8.54 8.6
Skjár 8.53 8.17 8.3 8.75 8.67
Þerna 8.31 8.15 8.21 8.18 8.23
Stefna 8.01 8.29 8.19 8.25 8.17
Hrefna 8.48 7.96 8.14 8.5 8.49
Rebekka 7.97 8.09 8.05 8.29 8.18
Styrkur 7.99 7.8 7.87 7.76 7.84

 

Eiðfaxi óskar þessum metnaðarfullu ræktendum til hamingju með glæsilegan árangur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link