Skagfirðingar fögnuðu góðum árangri
Mette og Kalsi á Íslandsmótinu fyrr í sumar
Veitt voru verðlaun í hinum ýmsu flokknum knapaverðlauna. Mette Mannseth hlaut þrjár útnefningar en hún var valin íþrótta-, gæðinga- og knapi ársins. Frábær árangur hjá Mette sem átti góðu gengi að fagna á árinu og má því til stuðnings nefna að á opnu gæðingamóti Skagfirðings stóð hún efst bæði í A-flokki og B-flokki á hrossum úr eiginræktun. Þá náði hún góðum árangri á WR íþróttamóti á Hólum auk þess að ríða til A-úrslita í fimmgangi á Íslandsmótinu og B-úrslita í slaktaumatölti.
Knapi ársins í áhugamannaflokki er Birna M Sigursbjörnsdóttir en hún sigraði B-flokk áhugamanna á Opnu gæðingamóti Skagfirðings og Félagsmóti Skagfirðings á Gamm frá Enni. Einnig sigraði hún fjórgang og tölt á Hólamótinu í vor.
Ungmenni ársins var Ásdís Ósk Elvarsdóttir. Ásdís sigraði tölt á íþróttamóti Sleipnis og var í fjórða sæti í slaktaumatölti á sama móti. Á Reykjavíkurmeistaramótinu var hún í 2.sæti í tölti og 7.sæti í fjórgang ásamt því að vera í 2.sæti í fimmgang og 4.sæti í slaktaumatölti. Á Íslandsmótinu lenti hún í 3.sæti í fjórgang, 3.sæti í fimmgang, 3.sæti í tölti eftir sætaröðun dómara og samanlagður sigurvegari í fimmgangsgreinum. Ásdís var svo fulltrúi Íslands á Heimsmeistaramótinu í Berlín með Koltinnu frá Varmalæk þar sem þær hlutu 2.sæti í tölti og 3-5.sæti í fjórgang.
Skeiðknapi ársins er Þórarinn Eymundsson en hann lenti í 5.sæti í 100m skeiði á Íslandsmótinu, sigraði 150m skeið á öðrum skeiðleikum Náttfara, sigraði 150m skeið á WR íþróttamótinu á Hólum, 2.sæti í 100m skeiði á öðrum skeiðleikum Náttfara, sigraði 150m skeið á Stórmóti Hrings, sigraði 150m skeið á WR íþróttamóti Sleipnis og í 2.sæti í 100m skeiði. Skeiðhryssa hans er Gullbrá frá Lóni en ásamt ofantöldu urðu þau Íslandsmeistarar í 150m skeiði og fóru þau á tímanum 14,10sek!
Félagi ársins er Sara Gísladóttir en hún hefur verið iðinn fyrir félagið og er m.a. formaður fræðslunefndar.
Íþrótta, gæðinga og knapi ársins: Mette Mannseth
Áhugamaður ársins: Birna M Sigurbjörnsdóttir
Ungmenni ársins: Ásdís Ósk Elvarsdóttir
Félagsmaður ársins: Sara Gísladóttir
Skeiðknapi ársins: Þórarinn Eymundsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH