Skeiðfélagið lifir !
„Skeiðfélagið ætlar ekki að láta sig vanta á keppnistímabilinu í sumar, því nú á dögunum var kosin ný stjórn félagsins og keppnisdagar fyrir sumarið ákveðnir. Ljóst er eftir fyrsta stjórnarfund að metnaður er í mönnum að standa vel að þessum mótum og vonandi luma knapar á nýjum og eldri stjörnum í hesthúsum víðs vegar um land. Mótin verða með sama sniði og þau voru hér áður fyrr þ.e.a.s. haldin á félagssvæði Sleipnis að Brávöllum Selfossi á miðvikudagskvöldum, að sjálfsögðu með rafrænum tímabúnaði og með öllu lögleg.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV