Skeiðgenið í Hátíðasalnum
Þann 4. október næstkomandi mun dr. Leif Andersson, prófessor við Uppsalaháskóla, halda fyrirlestur um nýlegar rannsóknir sínar á erfðum gangs í hestum. Rannsóknahópur Anderssons við Uppsalaháskóla og Sænska landbúnaðarháskólann hefur ásamt samstarfsfólki fundið breytileika í einum erfðaþætti (geni) í hrossum sem hefur úrslitaáhrif á getu þeirra til góðgangs, sem er jafnframt veigamikill þáttur í árangri hrossa í kerrukappakstri á brokki og skeiði.
Íslenski hesturinn var lykillinn að því að þessi breytileiki fannst. Tilraunir með þennan erfðaþátt í músum hafa leitt í ljós nýja grunnþekkingu á þeim taugaboðleiðum sem stýra hreyfingum útlima. Rannsóknin markar tímamót í skilningi á taugaboðleiðum í mænu og hvernig þær stýra hreyfimynstrum hryggdýra. Rannsóknin var nýlega birt í hinu virta vísindariti Nature. Andersson mun einnig ræða erfðaþætti sem ráða stærð hanakambsins en þar kom íslenska landnámshænan við sögu.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Hátíðasal Háskóla Íslands fimmtudaginn 4. október og hefst stundvíslega kl. 15:00. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku. Öllum er heimill aðgangur. Heiti fyrirlestrarins á ensku er: Pace Maker – a single base change reshapes horses’ neural circuits to add pacing to their repertoire,
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH