Skeiðleikar 3 á miðvikudagskvöld

  • 19. júlí 2021
  • Fréttir

Skeiðleikar 3 sem frestað var í síðustu viku verða haldnir á Brávöllum á Selfossi miðvikudaginn 21.júlí. Skráning er nú hafin og velja þarf Sleipni sem mótshaldara vegna bilana í Sportfeng.

Skeiðleikarnir eru með hefðbundnu sniði en byrjað er á 250 metra skeiði og endað á 100 metra skeiði.

Skeiðfélagið hvetur alla knapa til að taka þátt enda til mikils að vinna – 100.000 króna gjafaúttekt í Baldvin og Þorvaldi fyrir heildarsigurvegara og farandbikarinn Öderinn veittur stigahæsta knapa.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link