Skeiðmóti framhaldið í kvöld
Fresta þurfti skeiðmóti Meistaradeildar VÍS á laugardaginn sökum veðurs og tæknilegra örðugleika. Mótinu verður því framhaldið í kvöld og hefst kl. 18 á 150m skeiðinu og að því loknu verður keppt í gæðingaskeiði.
Eftir fyrri umferðina í 150m skeiðinu hafði Eyjólfur Þorsteinsson á Vorboða frá Höfða farið á besta tímanum, 15,12 sek. sem er ansi magnaður tími miðað við aðstæður. Teitur Árnason náði öðrum besta tímanum á Veigari frá Varmalæk, 15,27 og Elvar Þormarsson á Álmu frá Álftárósi þriðja besta tímanum, 15,38. Sjá nánar röðun efstu knapa eftir fyrri umferð hér að neðan.
- Eyjólfur Þorsteinsson, Málning, Vorboði frá Höfða, 15,12
- Teitur Árnason, Árbakki/Hestvit, Veigar frá Varmalæk, 15,27
- Elvar Þormarsson, Top Reiter, Álma frá Álftárósi, 15,38
- Hinrik Bragason, Árbakki/Hestvit, Tumi frá BOrgarhóli, 15,54
- Jakob S SIgurðsson, Frumherji, Funi frá Hofi, 15,66
- Sigurbjörn Bárðarson, Lífland, Óðinn frá Búðardal, 15,71
- Sigurður Óli Kristinsson, Frumherji, Gletta frá Fákshólum, 15,99
- Valdimar Bergstað, Málning, Glaumur frá Torfufelli, 16,13
- Ævar Örn Guðjónsson, Lífland, Blossi frá Skammbeinsstöðum, 16,15
- Guðmundur Björgvinsson, Top Reiter, Gjálp frá Ytra-Dalsgerði, 16,26
- Ragnar Tómasson, Lífland, Gríður frá Kirkjubæ, 16,31
- Sigurður Sigurðarson, Lýsi, Spá frá Skíðbakka 1, 16,61
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH