Skeifudagurinn á Hvanneyri á sumardaginn fyrsta

  • 24. apríl 2024
  • Fréttir
Allir velkomnir að Hvanneyri

Venju samkvæmt fer Skeifudagurinn á Hvanneyri fram fimmtudaginn 25. apríl, sumardaginn fyrsta. Skeifudagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur frá árinu 1957 en nafn sitt dregur hann af Morgunblaðsskeifunni sem eru verðlaun gefinn af Morgunblaðinu. Að þessu sinni verður það Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson sem veitir verðlaunin. Dagskrá hefst klukkan 13:00 í reiðhöllinni að Mið-Fossum.

Eftirfarandi kemur fram á vef Lbhí.

Hestamannafélag nemenda við skólann, Grani býður að því tilefni til uppskeruhátíðar búfræðinemenda sem stundað hafa hestamennskuáfanga við skólann í vetur en félagið heldur uppá 70 ára afmæli í ár. Dagskráin er hefbundin og hefst með fánareið kl 13 í reiðhöll hestamiðstöðvar LbhÍ að Mið-Fossum. Nemendur sýna afrakstur vetrarins en þau temja trippi ásamt því að þjálfa tamið hross. Að lokinni sýningu og keppni um Gunnarsbikarinn verður verðlaunaathöfn að Mið-Fossum þar sem nemendur selja kaffiveitingar og happadrættismiða í hinu margrómaða stóðhestahappadrætti. Í kaffinu verða svo veittar viðurkenningar og Skeifuhafi krýndur fyrir árið 2024. Forseti Íslands, Guðni th. Jóhannesson mun afhenda Skeifuna í ár fyrir hönd gefenda.

 

Viðburðurinn er öllum opinn og hvetjum við sem flesta til að koma og fagna komu sumars með okkur.

Dagskrá í reiðhöll hefst kl 13

  • Fánareið og opnunarávarp
  • Sýningaratriði Hestafræðibrautar
  • Kynning búfræðinemenda á tamningartryppum sem keppa um Skeifuna
  • Sýningaratriði frá Hemlu
  • Sýningaratriði „Útlenska hestafræðin“
  • Úrslit í keppni um Gunnarsbikarinn

Fjáröflunarkaffi Búfræðinemenda og verðlaunaathöfn

  • Útskriftarskirteini veitt
  • Verðlaun Félags Tamningamanna veitt
  • Eiðfaxaverðlaun veitt
  • Morgunblaðsskeifan veitt af Forseta Íslands Guðna Th. Jóhannessyni
  • Dregið í stóðhestahappadrætti Grana

 

Áætlað er að dagskrá ljúki rúmlega 4 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar