Skemmtileg áskorun
Keppendur munu kljást við þrautabraut á næsta móti í Meistarakeppni Æskunnar og Íshesta sem fram fer á sunnudag í reiðhöllinni í Víðidal.
„Keppnin byggist upp á því að leysa ákveðna þrautir á hestbaki (flestar) og ná góðum tíma. Keppnin er einföld og skemmtileg og er stefnt að því að hún verði í TM-Reiðhöllinni í Fáki næsta sunnudag. Skráning er á [email protected] og þar þarf að koma fram nafn keppanda, keppnisflokkur (barna, ungling eða ungmennaflokkur), nafn hests, fæðingarstaður, aldur og litur. Skráningafrestur er til föstudagskvölds 20. mars. Skráningargjaldið er kr. 500 og greiðist það á mótsstað áður en keppnin hefst (í sjoppunni, posi á staðnum en peningur væri betri ) Alli að skrá og hafa gaman af og safna stigum í stigakeppninni,“ segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Fáki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH