Skemmtileg keppni í hindrunarstökki
Hestamannafélagið Sóti á Álftanesi stóð fyrir opnum vetrarleikum sl. laugardag.
„Þrígangskeppnin, í þriðju og síðustu opnu vetrarleikunum fór fram á nýábornum vellinum í ekta Álftaness-norðan-garra í laugardaginn. Hver keppandi reið tvo hringi og sýndi þrjár gangtegundir. Verðlaunaafhending fór siðan fram í félagshúsinu á eftir.“
Úrslit fóru þannig:
17 ára og yngri:
1. Sylvía Sól Magnúsdóttir, Brimfaxa, á Sigurfara frá Húsavík
2. Birna F. Steinarsdóttir, Sóta, á Kolskeggi frá Laugabóli
3. Margrét Lóa Björnsdóttir, Sóta, á Breka frá Brúarreykjum
4. Heiðar Snær Rögnvaldsson, Sóta, á Króniku frá Efra-Nesi
5. Þórir Sigtryggsson, Sóta, á Aþenu frá Hafnarfirði
18 ára og eldri
1. Bryndís Einarsdóttir, Sóta, á Hildu frá Garðabæ
2. Steinar R. Jónasson, Sóta, á Kolskeggi frá Laugabóli
3-4. Einar Þór Jóhannsson, Sóta, á Orku frá Fróni
3-4. Elin Karin M. Hein, Gestur, á Gyðju frá Gunnarshólma
5. Gunnar Karl Árælsson, Sóta, á Lokki frá Raufarfelli 2
6. Jóhann Þór Kolbeins, Sóta, á Eini frá Litlu Hildisey
„Einnig var keppt í hindrunarstökki, í fyrsta sinn í sögu Sóta. Keppnin fór fram í gerðinu en flestir keppendur höfðu sótt námskeið hjá Karen W. Barrysdóttur í síðustu viku. Óhætt er að segja að allir hafi skemmt sér vel, bæði keppendur og áhorfendur. Vonandi er þessi keppnisgrein komin til að vera,“ segir í jafnframt í frétt frá Sóta.
Úrslit fóru þannig:
17 ára og yngri:
1. Heiðar Snær Rögnvaldsson, Sóta, á Króniku
2. Birna F. Steinarsdóttir, Sóta, á Þulu
3. Margrét Lóa Björnsdóttir, Sóta, á Breka
4. Ásdís Agla Brynjólfsdóttir, Sóta, á Ægi
5. Sylvía Sól Magnúsdóttir, Brimfaxa, á Sigurfara
18 ára og eldri
1. Haraldur Aikman, Sóta, á Ljúf
2. Bryndís Einarsdóttir, Sóta, á Hildu
3. Gunnar Karl Ársælsson, Sóta, á Lokki
4. Einar Þór Jóhansson, Sóta, á Dalíu
Þetta var þriðja og síðasta mótið í stigakeppninni á vetrarleikunum og sigurvegarar urðu:
Eingangur / Tvígangur / Þrígangur: 17 ára og yngri
Sylvia Sól Magnúsdóttir, Brimfaxa, með 24 stig
Efsti Sóta félaginn var Birna F. Steinarsdóttir með 20 stig
Eingangur / Tvígangur / Þrígangur: 18 ára og eldri
Einar Þór Jóhannsson, Sóta, með 26 stig
Smali / Brokk / Hindrunarstökk: 17 ára og yngri
Heiðar Snær Rögnvaldsson, Sóta, með 21 stig
Smali / Brokk / Hindrunarstökk: 17 ára og yngri
Jafnir urður Haraldur Aikman og Einar Þór Jóhanssson með 24 stig
Fleiri myndir frá mótinu má nálgast á Facebook síðu hestamannafélagsins Sóta.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH