Skennandi keppni

  • 22. mars 2018
  • Fréttir
Lið Krappa sigrar Suðurlandsdeildina annað árið í röð

Eftir gríðarlega spennandi keppni í vetur var það lið Krappa sem stóð uppi sem sigurvegari eftir mótin fjögur í Suðurlandsdeildinni. Liðsmenn Krappa voru í úrslitum í öllum greinum Suðurlandsdeildarinnar. Styrktaraðili liðsins er smíðafyrirtækið Krappi í Hvolsvelli. Lið Krappa er skipað atvinnumönnunum Sigurður Sigurðarsyni, Lenu Zielinski, Lárusi Jóhanni Guðmundssyni og áhugamönnunum Leu Schell, Benjamín Sand Ingólfssyni og Árný Oddbjörgu Oddsdóttur. Til hamingju með flottan flottan árangur í vetur!

Stigahæsta lið fimmgangsins varð lið Heimahaga og var það í annað skiptið sem liðið nær þeim árangri í vetur og er það glæsilegt. Liðsmenn þeirra sigruðu báða flokka en það var Hinrik Bragason á Byr frá Borgarnesi sem sigraði flokk atvinnumanna og í flokki áhugamanna var það Sigurbjörn Viktorsson á Brimrúnu frá Þjóðólfshaga. Einnig urðu Hulda Gústafsdóttir og Vísir frá Helgatúni önnur í flokki atvinnumanna.

Krappi sigrar með nokkrum yfirburðum en oft er mjótt á munum milli liða og aðeins örfá stig sem skilja að. Í liðakeppninni er það svo að neðstu þrjú liðin detta út en geta þó að sjálfsögðu sótt um á næsta tímabili á nýjan leik. 

Heildarniðurstöðu liðakeppninnar má sjá hér. 

Sæti – lið – stig. 

1. Krappi – 288.5

2. Húsasmiðjan – 245.5

3. Heimahagi – 243.5

4. Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð – 230.5

5. Árbæjarhjáleiga/Herríðarhóll – 222.5

6. GG Gröfuþjónusta og VÍKINGarnir – 196

7. Bakkakot/Kolsholt/Álfhólar – 193

8. IceWear – 192.5 

9. Sunnuhvoll/Ásmúli – 180.5

10. Þverholt/Pula – 170.5

11. Kálfholt/Hjarðartún – 144.5

12. Litlaland Ásahreppi – 92.5

Þau mistök urðu við lestur einkunna eftir úrslit áhugamanna að vitlaus röð knapa var lesin í 4. – 6. sæti og biðjumst við afsökunar á því. Rétt úrslit má sjá hér að neðan. 

1. Sigurbjörn Viktorsson og Brimrún frá Þjóðólfshaga 1 – Heimahagi – 6.52

2. Glódís Rún Sigurðardóttir og Snævar Þór frá Eystra-Fróðholti – Sunnuhvoll/Ásmúli – 6.50

3. Vilborg Smáradóttir og Þoka frá Þjóðólfshaga – IceWear – 6.40

4. Róbert Bergmann og Álfrún frá Bakkakoti – Bakkakot/Kolsholt/Álfhólar – 6.19

5. Gísli Guðjónsson og Bylting frá Árbæjarhjáleigu 2 – Árbæjarhjáleiga/Herríðarhóll – 6.17

6. Katrín Sigurðardóttir og Þytur frá Neðra-Seli – Húsasmiðjan – 5.76

Úrslit atvinnumanna má sjá hér.

1. Hinrik Bragason og Byr frá Borgarnesi – Heimahagi – 7.12

2. Hulda Gústafsdóttir og Vísir frá Helgatúni – Heimahagi – 6.86

3. Hekla Katharína Kristinsdóttir og Jarl frá Árbæjarhjáleigu 2 – Árbæjarhjáleiga/Herríðarhóll 6.79

5. Elvar Þormarsson og Kolskör frá Hárlaugsstöðum – GG Gröfuþjónusta og VÍKINGarnir – 6.76

5.-6. Vignir Siggeirsson og Ásdís frá Hemlu II – Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð – 6.74

5.-6. Sigurður Sigurðarson og Álfsteinn frá Hvolsvelli – Krappi – 6.74

7. Ísleifur Jónasson og Prins frá Hellu – Kálfholt/Hjarðartún – 6.26

Stjórn Suðurlandsdeildarinnar þakkar knöpum, starfsmönnum, styrktaraðilum og áhorfendum kærlega fyrir veturinn og er strax orðin mikil tilhlökkun fyrir næsta tímabili sem hefst í janúar 2018. Takk fyrir veturinn!

Ítarlegri úrslit verða sett í viðburðinn á facebook. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link