Skilasýning á Hólum: myndir
Skilasýning fór fram á Háskólanum á Hólum þann 23. febrúar síðastliðinn. Þar sýndu nemendur eigendum hrossanna afrakstur sinn á frumtamningahrossum og þjálfunarhrossum. Bekkir Þráarhallarinnar voru þéttsetnir á meðan sýningunni stóð, en trippin voru sýnd í reið bæði inni og úti. Blaðamaður Eiðfaxa kíkti við og smellti af nokkrum myndum.
Hver nemandi fékk tvö frumtamningarhross og tvö þjálfunarhross sem þau voru með í 6 vikur. Hrossin sem voru í tamningu á Hólum koma víðsvegar að landinu, enda er frjálst fyrir alla að sækja um pláss í tamningu og þjálfun. Þegar þessu tímabili er lokið á trippið að vera vel reiðfært úti, samþykkja létt taumsamband, svara grunnábendingum frá sæti og taum, hægt sé að stjórna hraða og stefnu og svari hvatningu af léttleika. Ekki eru gerðar neinar kröfur um höfuðburð eða gangtegund á þessu stigi, það kemur í áframhaldandi þjálfun hestsins. Öllum frumtamningartrippum er kennt að teymast við hlið á hesti, fara í víðavangspróf þar sem þeim er riðið yfir þúfur, ár og hindranir af ýmsu tagi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH