Skráning á Íslandsmót yngri flokka í kvöld

  • 12. júlí 2011
  • Fréttir
Skráning á Íslandsmót yngri flokka í kvöld

Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna 2011 fer fram á Mánagrund, félagssvæði hestamannafélagsins Mána dagana 21.-24.júlí.

Skráning hefst 4.júlí og fer fram í gegnum tölvupóst og skal senda skráningu á [email protected]



Skráningargjald er kr. 4.500 á hverja skráningu og greiðist við skráningu. Síðasti skráningardagur er 12.júlí.                    

Hægt verður að hringja inn skráningar þriðjudagskvöldið 12.júlí milli kl. 19-22.
861-2030 –NOVA
861-0012 – NOVA
866-0054 – SIMINN
862-6969 – SIMINN
695-0049 – VODAFONE
 
Koma þarf fram:
Nafn og kennitala knapa, auk símanúmers.
IS númer hests, keppnisgrein og uppá hvora hönd viðkomandi hyggst keppa.
Kreditkortanúmer og gildistími.

Einnig er hægt er að leggja inn á reikning Mána 0121-26-3873  kt.690672-0229.
Staðfestingu á greiðslu verður að senda á sama netfang og skráningar, mjög mikilvægt er að setja í skýringu nafn/kennitölu knapa.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:
Töltkeppni barna-, unglinga- og ungmennaflokkur       

Fjórgangur barna-, unglinga- og ungmennaflokkur    

Fimmgangur unglinga- og ungmennaflokkur         

Gæðingaskeið unglinga- og ungmennaflokkur                    

Skeið 100m (flugskeið) unglinga og ungmenna       

Fimikeppni A barna- og unglingaflokkur                      

Fimikeppni A2 ungmennaflokkur                                  

Töltkeppni T4 unglinga og ungmenna

Mótsstjóri er Sigurður Kolbeinsson s. 869-3530
Umsjónarmaður hesthúsplássa er Bjarni Stefánsson s. 866-0054.

Tjaldsvæði eru við gistiheilmilið Alex, þar er einnig hægt að leigja litla kofa. Auk þess er tjaldsvæði á Garðskaga.

Verið velkomin. Hlökkum til að sjá ykkur.



Mótanefnd Mána

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link