Skráning á námskeið í Hestheimum

  • 20. september 2011
  • Fréttir
Skráning á námskeið í Hestheimum

Hestheimar auglýsa nú skráningar á járninganámskeið Guðmundar Guðmundssonar í október og tvö helgarnámskeið með Mette Manseth á næsta ári. 

 
Hið sívinsæla járningarnámskeið Hestheima verður laugardaginn 8. október
Skráning er hafin! Þessi námskeið hafa slegið rækilega í gegn undanfarin ár, enda hagkvæmt að geta járnað sjálf/ur. Nú er um að gera að láta hendur standa fram úr ermum og bóka fljótt, þar sem aðeins 5 nemendur komast að! Kennari verður sem fyrr reynsluboltinn og fróðleiksnáman Guðmundur Guðmundsson frá Hellu. Verð aðeins: 15.500,- 
Námskeiðið hefst kl. 9.00 og lýkur um kl. 16.00.
Innifalið: kennsla, afnot af járningarverkfærum og hestur til að járna,hádegisverður, kaffi,te og kakó. Einnig ljúffengar heimabakaðar kökur.
Upplýsingar og skráning í síma: 487-6666/696-1332 og [email protected]. Þessi námskeið henta jafnt konum og körlum, ungum sem öldnum.
 
Mette Manseth kennir í Hestheimum 2012
Fyrra námskeiðið verður 21.-22. Janúar 2012. Seinna námskeiðið verður 3.-4.Mars 2012. Lágmarksfjöldi er 10 manns. Hámarksfjöldi er 12 manns. 
Námskeiðið er aðeins fyrir vana knapa.
Námskeiðið kostar : 29.000,- ISK á manninn. Greiðist fyrirfram.
Innifalið:
– Kennsla hjá Mette í 2 daga
– Hestar fyrir þá sem vilja og reiðtygi
– Aðstaða í reiðhöll og hesthúsi
– Hádegisverður á laugardegi og sunnudegi
– Kaffi, te og kakó innifalið yfir daginn, kex og kökur
Nú þarf að vera snögg/ur og tryggja sér pláss , síðast var uppbókað á örskömmum tíma og langur biðlisti ! 
Hægt að kaupa hey og fá hesthúspláss fyrir hesta sem nemendur koma með. Kostar 1.000,- sólarhringurinn. 
 
Hægt er að panta gistingu í herbergjum með sérbaði og fullt fæði, ef óskað er. Heitur pottur og dýrindis matur í boði. Með gistingu í 2 nætur og fullu fæði kostar helgin: 45.000,- á manninn. 
Nánari upplýsingar í síma: 487-6666 og [email protected], www.hestheimar.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link