Skráning á Tommamótið og grill
Viljum minna á að skráning á Tommamótið fer fram í Hestamiðstöðinni Víðidal á morgun miðvikudag (5. sept) frá kl. 17 – 21 og í síma 867-0177 & 867-0157 & 772-0202. Við skráningu þarf að gefa upp IS nr hests, nafn og svo frv. Skráningargjald kr. 2000.- greiðist við skráningu. Skráningargjaldið rennur óskipt í minningarsjóð Tómasar heitins Ragnarssonar.
Keppt verður í:
100 m skeið
150 m skeið
250 m skeið
Tölt T3 opinn flokkur
Tölt T4
Tölt T7 (ekki hraðabreytingar)
Fimmgangur F2 opinn flokkur
Bjórreið
Dagskrá verður birt að lokinni skráningu en gera má ráð fyrir forkeppni á föstudegi og úrslitum á laugardegi. Boðið verður upp á frítt kaffi alla helgina í Hestamiðstöðinni. Svo minnum við á hið fræga grill í anda Tómasar sem verður í Hestamiðstöðinni á Laugardagskvöldið og auðvitað allir velkomnir.
Ath mótshaldarar áskilja sér rétt til að takmarka fjölda í hvern flokk, þannig að það er besta að skrá sig sem fyrst.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH