Skráning hafin
Stórmót Þjálfa verður haldið á Einarsstöðum helgina 8-9.ágúst næstkomandi.
Keppt verður í: A-flokki, B-flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki, öldungaflokki, tölti og skeiði. Miðaverð er 3000 kr fyrir helgina en frítt fyrir þá sem eru yngri en 14 ára og einnig þá sem eru 67 ára og eldri. Skráningar fara fram í gegnum sportfeng og er ekkert skráningargjald nema í tölt (2500kr.) og skeið (1000 kr.) Lokað verður fyrir skráningar þriðjudagskvöldið 4.ágúst klukkan 22.00. Hægt verður að fylgjast með upplýsingum um dagskrá og ráslista inn á heimasíðu Þjálfa www.thjalfi.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum