Íslandsmót Skráning hafin á Íslandsmót ungmenna og fullorðna

  • 17. júlí 2024
  • Fréttir
Íslandsmót fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum verður haldið í Víðdal í sumar,

Það er hestamannafélagið Fákur sem heldur mótið dagana 24.júlí – 28.júlí. Þátttökurétt eiga þau pör sem hafa náð lágmörkum í hverri grein á þessu ári ekki síðar en 19. júlí en þá lýkur skráningu á mótið.

Pör sem náð hafa lágmörkum í hringvallagreinum í fullorðinsflokki og ungmennaflokki hafa heimild til að taka þátt á mótinu. Lágmörk gilda einnig í skeiðgreinum, 100m, 150m, 250m og gæðingaskeiði. Í Gæðingalist eru það fyrir 15 sem skrá sig.

Víðidalurinn mun án efa skarta sínu fegursta og það verður spennandi að fylgjast með bestu hestum og knöpum landsins etja þar kappi.

Skráning er hafin og lýkur 19 júlí kl 23:59. Skráningagjald í hverja grein eru 15.000kr. Skráning fer fram í sportfeng og velja þarf Fák sem mótshaldara. – skraningar@fakur.is

Þau lágmörk sem pör skulu hafa náð eru eftirfarandi;

  • F1 – Fullorðnir 6,80
  • F1 – Ungmenni 6,10
  • V1 – Fullorðnir 7,00
  • V1 – Ungmenni. 6,50
  • T1 – Fullorðnir. 7,40
  • T1 – Ungmenni. 6,60
  • T2 – Fullorðnir. 7,00
  • T2 – Ungmenni 6,20
  • PP1 – Fullorðnir 7,10
  • PP1 – Ungmenni 5,90
  • P2 100m – Fullorðnir 8,0 sek
  • P2 100m – Ungmenni 9,0 sek
  • P3 150m – Opinn flokkur 15,40 sek
  • P3 1500m – Ungmenni 17,00 sek
  • P1 250m – Opinn flokkur 24,80 sek
  • P1 250m – ungmenni 26,00 sek
  • Gæðingalist – Fullorðnir – Fyrstu 15 sem skrá.
  • Gæðingalist – Ungmenni – Fyrstu 15 sem skrá.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar