Skráning hafin í fimmganginn
Fákasels mótaröðin heldur áfram föstudaginn 29. mars en þá verður keppt í fimmgangi F2 og er það Gimli fasteignasalan sem styrkir mótið. Mótaröðin er opin öllum sem eru eldri en 16 ára og er skráning hafin inn á www.sportfengur.com. Boðið er upp á tvo flokka – opinn flokk 1 og 2.
Hægt verður að safna stigum á hverju móti og eftir síðasta mótið verða veitt 100.000 kr peningaverðlaun fyrir stigahæsta knapa í báðum flokkum. En síðasta mótið er 19.apríl og verður þá keppt í fjórgangi V2
Hægt verður að mæta á þriðjudaginn 26.mars og æfa sig í höllinni. Skráningu lýkur miðvikudaginn 27.mars. Skráningagjald er 4.000 kr.-
Hlökkum til að sjá sem flesta taka þátt í skemmtilegri mótaröð á föstudagskvöldum í vor. Hægt verður að fylgjast með Fákasels mótaröðinni á facebooksíðu Fákasels.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH