Skráning hjá Sörla

  • 11. maí 2012
  • Fréttir
Skráning hjá Sörla

Íþróttamót Sörla verður haldið á Sörlavöllum 19.-20. maí. Athugið að lokað verður fyrir skráningar á mótið þriðjudaginn 15. maí á miðnætti, en hægt er að skrá sig hér. Mótið er opið í Meistaraflokkum, 1 flokki og 100 m skeið. Skráningargjald er 3500 á grein nema börn og unglingar 2500 á grein og skeið 2000 og 1000 krónur fyrir polla.

 
Flokkar í boði:
Pollar
Barnaflokkur
• Tölt
• Fjórgangur
 
Unglingaflokkur
• Tölt
• Fjórgangur
• Fimmgangur
• Gæðingaskeið
• Fimi
 
Ungmennaflokkur
• Tölt
• Fjórgangur
• Fimmgangur
• Gæðingaskeið
• Fimi
• Tölt T2
 
Meistara, 1. og 2. flokkur
• Tölt
• Fjórgangur
• Fimmgangur
• Gæðingskeið
• Tölt T2
 
Auk þess er boðið upp á 100 m. skeið
Mótanefnd áskilur sér rétt til þess að fella niður eða sameina flokka ef skráning er ekki næg.
 
ATH: Aðeins er hægt a skrá einn knapa í einu, s.s eina kennitölu, en aftur á móti getur knapi skráð sig í allar þær greinar sem hann vill taka þátt í, í einni skráningu.
 
Mótanefnd Sörla

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link