Skráning opin á Gæðingamót Fáks og Spretts

  • 23. maí 2023
  • Fréttir
Gæðingamótið verður á félagssvæði Fáks dagana 30. og 31. maí

Opna gæðingamót Fáks og Spretts átti að fara fram dagana 26. og 28 maí 2023 á félagssvæði Fáks en búið er að fresta því vegna dræmrar skráningar og slæmrar veðurspár til þriðjudags og miðvikudags í næstu viku, 30. og 31. maí.

Skráning hefur verið opnuð aftur og er opin til miðnættis á föstudag, 26. maí. Skráning fer fram á Sportfeng, www.sportfengur.com. Athugið: Skráning fer ekki í gegn fyrr en skráningargjald hefur verið greitt

ATHUGIÐ: Ef keppendur óska eftir að skrá eftir að skráningarfresti lýkur er greitt tvöfalt skráningargjald. Ekki er hægt að bæta við skráningum eftir að ráslistar hafa verið birtir.

Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:
A-flokk gæðinga
B-flokk gæðinga
A-flokk gæðinga áhugamenn
B- flokk gæðinga áhugamenn
A-flokk ungmenna
B- flokk ungmenna
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Gæðingatölt – Áhugamenn
Tölt T1
Gæðingaskeið PP2
Flugskeið 100m P2

Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka eða fella niður sé ekki næg skráning.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar