Skráning stendur yfir á opna WR mót Sleipnis

  • 8. maí 2012
  • Fréttir
Skráning stendur yfir á opna WR mót Sleipnis

Opna WR Íþróttamót Sleipnis verður haldið á Brávöllum, Selfossi dagana 10.-13. maí. 

Lokaútkall til að skrá sig á mótið er í kvöld 8. maí milli kl. 20-22 í símum 8494505 – 8464582 – 6648001.
 
Við skráningu þarf að koma fram IS númer hests og kennitala knapa og upp á hvora höndina knapi vill ríða.
Keppt verður í öllum hefðbundnum keppnisgreinum:
 
  • Fullorðinsflokkur : T1,tölt-V1,fjórg. -F1,fimmg.    Einn inni á vellinum í einu
  • PP1, gæðingask. 150-250 og 100m skeið.
  • T3, tölt  V2-fjórg. og T4 slaktaumatölt en þar ríða þrír inná í forkeppni og er stjórnað af þul.
  • Ungmennaflokkur :T3,V2og F2
  • Unglingaflokkur : T3,V2 og F2
  • Barnaflokkur : T3 og V2
 
Mótið hefst á fimmtudagskveldi  með skeiðleikum.
 
Þátttökugjald per grein er: 
  • 4000 kr. fyrir utanfélagsmenn
  • 3500 kr. fyrir félagsmenn í Sleipni
  • 2500 kr. fyrir börn og unglinga 
Greiðsla þarf að berast fyrir kl: 14 miðvikudaginn 9.mai annars fellur keppandi sjálfkrafa út.
Reikningsnúmer:0152-26-100174  
Kennitala: 590583-0309
 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link