Skráning á Svínavatn
Mótið verður haldið laugardaginn 5. mars. Ísinn er afbragðs góður og vel lítur út með veður og færi.
Skráningar berist á netfangið [email protected] í síðasta lagi þriðjudaginn 1. mars. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru A-flokkur, B-flokkur og Tölt. Skráningargjald eru 3.500. kr. á skráningu og greiðist inn á reikning 0307-13-110240 Kt: 480269-7139 og setja sem skýringu fyrir hvaða hross er verið að greiða.
Ráslistar og aðrar upplýsingar verða birtar á heimasíðu mótsins þegar nær dregur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH