Skráningar hafnar hjá Gusturum
Tekið er á móti skráningum um helgina á íþróttamót Gusts sem verður haldið dagana 12.-13. maí í Glaðheimum
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- Pollar: 3-gangur og tölt
- Börn: Tölt & 4-gangur
- Unglingar: Tölt & 4-gangur
- Ungmenni: Tölt, 4-gangur, 5-gangur & gæðingaskeið
- Flokkur 2: Tölt (T7), 4-gangur, 5-gangur, gæðingaskeið & slaktaumatölt
- Flokkur 1: Tölt, 4-gangur, 5-gangur, gæðingaskeið & slaktaumatölt
- Einnig verður keppt í 100m skeiði.
Skráning verður frá föstudeginum 4. maí og til miðnættis mánudaginn 7. maí.
Skráningargjöld eru 2500 fyrir börn og unglinga, 3500 aðrar skráningar að er fram kemur í tilkynningu frá Gusti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH