Skeiðfélagið Skráningur lýkur í kvöld á Skeiðleika

  • 4. júní 2024
  • Fréttir
Aðrir skeiðleikar Líflands og Eques fara fram á Brávöllum á Selfossi á morgun, miðvikudag 5. júní.

Skráningu lýkur í kvöld á miðnætti. Skráning fer fram í gegnum Sportfeng en velja þarf skeiðfélagið sem mótshaldara.

Styrktaraðilar skeiðleikanna – Eques og Lífland styrkja um alla verðlaunagripi sumarsins auk þess að stigahæsti knapi ársins hlýtur fra Líflandi 100.000 króna úttekt í versluninni.

Þá fær stigahæsti knapi ársins einnig til varðveislu í eitt ár farandgripinn Öderinn sem Gunnar Arnarson og Kristbjörg Eyvindsdóttir gáfu til minningar um Einar Öder Magnússon.

Skeiðleikarnir verða með hefbundnu sniði þar sem byrjað verður á 250 m skeiði og endað á 100 m skeiði.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar