Skyndihjálp og kynning á reiðleiðum
Sigurjón Hendriksson og Halldór Halldórsson verða með fyrirlestur í Glaðheimum 22. nóv. kl. 19:30.
Sigurjón Hendriksson verður með fyrirlestur um öryggismál fyrir hestamenn, hvað á að gerast ef óhöpp verða, fyrsta hjálp, hvað ber að gera, teikn og einkenni, ósk um aðstoð, samskipti og spurningar neyðarlínu, einnig verður farið í sjúkrabúnað sem gott er að hafa í styttri og lengri ferðir.
Halldór Halldórsson formaður Reiðveganefndar Andvara verður með kynningu á reiðleiðum á nýja félagssvæðinu.
Fyrirlesturinn er í boði Gusts fyrir félagsmenn Gusts og Andvara en 500 kr. fyrir aðra.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH