Skýr á flest fullnaðardæmd afkvæmi í ár
Skýr frá Skálakoti hlaut heiðursverðlaun og Sleipnisbikarinn á landssýningu árið 2020. Ljósmynd: Louisa Hackl
Kynbótasýningum hér á landi lauk í síðustu viku en alls voru 1389 fullnaðardómi felldir á 15 mismunandi sýningum auk Landsmóts.
Eiðfaxi mun gera upp kynbótaárið í tölum í Árbók Eiðfaxa og hér á vefnum.
Flest dæmd afkvæmi í ár dæmd í fullnaðardómi á Skýr frá Skálakoti alls 55 talsins. Næstur á eftir honum er Álfaklettur frá Syðri-Gegnihólsum með 38 dæmd afkvæmi og þar skammt undan er Kveikur frá Stangarlæk 1 með 36 dæmd afkvæmi.
Taka skal til skoðunar að hér er ekki tekið tillit til fjölda afkvæma á tamningaraldri en sá fjöldi er mjög mismunandi á milli þessara hesta auk aldurs þeirra sjálfra.
| Nafn | Afkvæmi dæmd í fullnaðardómi |
| Skýr frá Skálakoti | 55 |
| Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum | 38 |
| Kveikur frá Stangarlæk 1 | 36 |
| Draupnir frá Stuðlum | 27 |
| Þráinn frá Flagbjarnarholti | 26 |
| Skaginn frá Skipaskaga | 25 |
| Kiljan frá Steinnesi | 19 |
| Spuni frá Vesturkoti | 19 |
| Adrían frá Garðshorni á Þelamörk | 18 |
| Hrannar frá Flugumýri | 16 |
| Arion frá Eystra-Fróðholti | 16 |
| Konsert frá Hofi | 15 |
| Óskasteinn frá Íbishóli | 15 |
| Dagfari frá Álfhólum | 14 |
| Forkur frá Breiðabólstað | 13 |
| Sjóður frá Kirkjubæ | 13 |
| Trymbill frá Stóra-Ási | 12 |
| Apollo frá Haukholtum | 12 |
| Ölnir frá Akranesi | 12 |
| Hringur frá Gunnarsstöðum | 11 |
| Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | 10 |
| Ljósvaki frá Valstrýtu | 10 |
| Ísak frá Þjórsárbakka | 10 |
| Viti frá Kagaðarhóli | 10 |
Minningarorð um Ragnar Tómasson
Fyrsti þáttur af „Dagur í hestamennsku“
Landsmótið verður í beinni á EiðfaxaTV