Sleipnir hlaut Æskulýðsbikar LH
Árlega veitir Landsamband hestamannafélaga einu hestamannafélagi Æskulýðsbikar LH, en bikarinn er veittur því félagi sem skarað hefur fram úr í æskulýðsmálum. Hestamannafélagið Sleipnir hlaut Æskulýðsbikarinn í ár.
Tuttugu og ein skýrsla æskulýðsnefnda bárust LH og hafa þær aldrei verið fleiri. Í máli Helgu B. Helgadóttur, formanns Æskulýðsnefndar LH, kom fram að greinilegur metnaður og fjölbreytileiki sé í æskulýðsstarfi hestamannafélaga um allt land. Það væri ekki síst vegna tilkomu reiðhallar Sleipnis, sem tekin var í notkun í fyrra, að félagið hafi lyft grettistaki í æskulýðsstarfi sínu.
Skýrslu Æskulýðsnefnda má nálgast hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH