Snæfellingur og Hestamiðstöðin í Söðulsholti
„Laugardaginn 9. febrúar, kl. 13:00 ætlum við að vera með folaldasýningu í Söðulsholti. Hver skráning kostar kr. 1.000 og hægt er að skrá hjá Einari í síma 899-3314 eða með tölvupósti til: [email protected].
Sýningin er öllum opin . Gefa þarf upp nafn og fæðingarnúmer folalds, lit, fæðingarstað, föður og móður, ræktanda og eiganda. Keppt verður í kynjaskiptum flokkum og svo velja gestir fallegasta folaldið. Að þessu sinni ætlum við að biðja fólk að stilla fjöldanum í hóf þannig að hver ræktandi sé ekki að koma með fleiri en 3-4 folöld
Skráningargjaldið greiðist inn á reikning 0354-26-3970, kt. 271235-4539. Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 7. Febrúar.
Aðgangseyrir er kr. 1.000 á mann, sem greiðist við inngang í reiðufé, enginn posi. Innifalið í því eru kaffiveitingar- frítt fyrir börn 12 ára og yngri. Auðvitað vonumst við til að sjá sem flesta og góð hugmynd að gestir hafi með sér létta tjaldstóla til að geta hvílt lúin bein,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH