Snjófælur gagnlegt öryggistæki
Skaflajárning og snjófæla
Valdimar Kristinsson tamninga-og járningarmaður hefur notað snjófælur í mörg ár og hefur góða reynslu af notkun þeirra. „þegar aðrir teyma hestana heim ríð ég út“ segir Valdimar og fullyrðir að snjófælurinar virki frábærlega.
Margir kannast við að hestar hafa slasað sig þegar snjór hefur hlaðist í hóf og hesturinn misstigið stig og bólgnað upp þannig að kalla hefur þurft á dýralækni. Þá eru líka dæmi um að hestar hafa hrasað illa við þessar veður aðstæður og því eru snjófælurnar öryggisatriði bæði fyrir hest og knapa.
Myndin er af snjófælu í framhóf þær fást formaðar bæði fyrir fram og afturhófa en fælurnar fást í flestum hestavöruverslunum landsins og eru ódýr forvörn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH