Háskólinn á Hólum Söguleg brautskráning við Hestafræðideild Háskólans á Hólum

  • 29. maí 2026
  • Fréttir

Útskriftarhópurinn. Alls voru 24 kandidatar brautskráðir, þar af sex með sérhæft íslenskt járningamannapróf, sautján með BS-gráðu í reiðmennsku og reiðkennslu og einn með MS-gráðu í hestafræði. Myndir: Háskólinn á Hólum

Þórey Þula Helgadóttir hlaut Morgunsblaðshnakkinn og FT skjöldin.

Um síðast liðna helgi fór fram brautskráning við Hestafræðideild Háskólans á Hólum. Dagurinn markaði tímamót í sögu skólans en í fyrsta sinn voru brautskráðir nemendur úr alþjóðlegu námi í járningum og fyrsti nemandinn lauk meistaragráðu í hestafræði frá Háskólanum á Hólum. Við sama tilefni var þess einnig minnst að 30 ár eru liðin frá því fyrstu nemendurnir luku námi í hestafræði við skólann.

Alls voru 24 kandidatar brautskráðir, þar af sex með sérhæft íslenskt járningamannapróf, sautján með BS-gráðu í reiðmennsku og reiðkennslu og einn með MS-gráðu í hestafræði, en það var Johannes Amplatz.

Þórey Þula Helgadóttir hlaut Morgunsblaðshnakkinn og FT skjöldin.

Þórey Þula Helgadóttir vann verðlauna­grip­inn Morg­un­blaðshnakk­inn sem veitt­ur er fyr­ir besta samanlagðan árangur í reiðmennsku og FT skjöldinn, verðlaun Fé­lags tamn­inga­manna fyr­ir besta ár­ang­ur á loka­prófi í reiðmennsku. Hera Sól Hafsteinsdóttir hlaut verðlaun fyrir bestan samanlagðan árangur í BS námi í Reiðmennsku og reiðkennslu. Carlotta J. Börgmann og Kristófer Darri Sigurðsson fengu verðlaun fyrir bestan árangur í kennslufræði.

Eiðfaxi óskar öllum útskriftarnemum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og velfarnaðar á komandi vegferð

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link