Sólfaxi sá eini með 10 fyrir hægt tölt

  • 17. september 2022
  • Fréttir

Sólfaxi frá Herríðarhóli hlaut 10 fyrir tölt og hægt tölt, sýnandi Árni Björn Pálsson Mynd: Nicki Pfau

Tíu hross hlutu 9,5 fyrir hægt tölt á árinu

Nú þegar kynbótasýningum árið 2022 er lokið þá er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleikinn sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er hægt tölt.

Sólfaxi frá Herríðarhóli var sá eini sem hlaut 10,0 fyrir hægt tölt á árinu en hann hlaut einkunnina tvisvar. Fyrst á vorsýningu á Hellu og síðan á Landsmótinu. Til gamans má geta að Sólfaxi hlaut einnig 10 fyrir tölt.

Sólfaxi er undan Óskasteini frá Íbisóli og Hyllingu frá Herríðarhóli. Ræktandi Sólfaxa er Ólafur Arnar Jónsson en eigendur eru Anja Egger-Meier og Grunur ehf. Sólfaxi var sýndur af Árna Birni Pálssyni.

Tíu hross hlutu 9,5 fyrir tölt á árinu. Athygli vekur að öll þessi hross voru sýnd á Íslandi.

Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5 fyrir tölt.

Nafn Uppruni Sýnandi
Auðlind Þjórsárbakka Teitur Árnason
Bylgja Barkarstöðum Helga Una Björnsdóttir
Dússý Vakurstöðum Teitur Árnason
Elding Hrímnisholti Benjamín Sandur Ingólfsson
Kastanía Kvistum Árni Björn Pálsson
Lýdía Eystri-Hól Árni Björn Pálsson
Nótt Miklaholti Árni Björn Pálsson
Skarpur Kýrholti Jakob Svavar Sigurðsson
Svarfdæla Þúfum Mette Camilla Moe Mannseth
Vigri Viðar Ingólfsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar