Sölu- og markaðsmál

  • 8. apríl 2011
  • Fréttir
Sölu- og markaðsmál

Eiðfaxi óskar eftir að ráða starfsmann til sölu- og markaðsmála. Starfið felst í sölu auglýsinga, gerð auglýsingasamninga og umsjón með markaðsmálum fyrirtækisins…

Við leitum að einstaklingi sem hefur frumkvæði, hefur gott vald á ensku, er skipulagður og áreiðanlegur og á gott með mannleg samskipti.
Æskilegt er að viðkomandi hafi áhuga á og þekki til hestamennsku.

Eiðfaxi ehf er útgáfufyrirtæki sem gefur út tímarit fyrir unnendur íslenska hestsins um allan heim auk þess að halda úti vefsvæðinu https://eidfaxi.is

Hjá Eiðfaxa ehf starfa 5 starfsmenn.
Frekari upplýsingar um fyrirtækið og starfsemi þess er að finna á heimasíðu félagsins www.eidfaxi.is

Nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Einarsson í síma 588 2525.
Umsóknarfrestur er til 21. apríl og skulu umsóknir ásamt ferilskrám berast á netfangið [email protected]
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link