Sölubásar á Hestadögum í Reykjavík

  • 22. febrúar 2011
  • Fréttir
Sölubásar á Hestadögum í Reykjavík

Vikuna 26. mars til 2.apríl verða haldnir Hestadagar í Reykjavík.

Laugardagurinn 2 .apríl er einn af stærstu dögunum á hátíðinni, þar sem frítt verður inn í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn. Þar verður mikið um að vera allan daginn með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna og því er búist er við miklum fjölda í Laugardalinn þennan dag. 

Hestaþorp verður staðsett í miðjum garðinum þar sem handverksfólki og öðrum afþreyingarfyrirtækjum stendur til boða að vera með kynningar- og sölubása.  Sölubásarnir sem verða á staðnum eru húsin (jólaþorpið) sem er í eigu Hafnafjarðarbæjar. Athugið að aðeins er um einn dag að ræða frá kl. 10-17.  Þorpið verður sett upp föstudaginn 1. Apríl.

Verð fyrir leigu á sölubás fyrir daginn er kr 7.500 kr.

Áhugasamir hafið samband við Ingibjörgu sem gefur allar nánari upplýsingar um Hestaþorpið á [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link